top of page

Um Okkur

 

Búslóðageymsla Olivers hefur verið starfrækt óslitið frá 1986 bæði í eigin húsnæði og leiguhúsnæði. Eigendur eru hjónin Oliver Edvardsson og Sigrún Björk Sigurðardóttir.Fyrirtækið byrjaði í 75 fermetrum í Starmýri í Reykjavík árið 1986 og strax á fyrsta ári var stækkað í 220 fermetra sem var leiguhúsnæði í Kaplahrauni í Hafnarfirði. Næsta skref var að kaupa 450 fermetra iðnaðarhúsnæði á Bíldshöfða 16 í Reykjavík og þar störfuðum við í allmörg  ár.  Enn var farið í að stækka og verslað húsnæði á Draghálsi 14-16 og tekið á leigu á Bíldshöfða 13-15 alls 800 fermetrar.  Árið 2004 var flutt í 1600 fermetra leiguhúsnæði í Skeifunni og starfað þar til 2009.  Eftir 2008 var ekki þörf á svo stóru húsi í þesum  bransa og samið við leigufélag um minkun í 700 fermetra sem staðsett er í Auðbrekku 1 Kópavogi og erum þar í dag árið 2016. Árið 2014 var farið í að sinna norðurlandi með geymsluhúsnæði á Námavegi 2 á Ólafsfirði og eigum við þar 800 fermetra hús þar. Nú í ágúst 2016 eru samningar í gangi um að taka á leigu húsnæði á Akureyri og byrja að þjónusta örtstækkandi byggð á Akureyri.
bottom of page